Dressman
Myndir
Matreiðslu tenglar
03.05.2005 13:08:05 / dressman

Af heróinneyslu og hjónavíglutónlist

Nú fer brúðkaups æðið að hellast yfir landann enda sísonið að hefjast með viðeigndi sjónvarps þátta lágkúru og stórsýningum í Smáranum. Þrisvar í viku fáum við að sjá í slómósjón á skjáeinum, íslenska flíspeysuplebba fara í spariföt, messu og svo fyllerí. Brúðhjónin dansa svo við píanospil og einsöng Páls óskars eða einhvers hæfileikalauss ættingja. Eitt allra vinsælasta brúðkaupslagið er Perfect day með Lou Reed, Sem fólk telur afskaplega rómantist og kjósa að kóróna daginn með þessu fallega lagi sem fjallar um þær dásemdir og æðruleysi sem fylgir heróinneyslu, ekki hjónbandi. Eftir að ég fattaði þetta lét ég mér detta í hug nokkur önnur lög sem gaman væri að heyra í brúðkaupi á meðan að brúðhjónin dansa sinn fyrsta dans í heilugu hjónabandi; Nine inch nails- Closer(I wanna fuck you like a animal) G´nR- I used to love her(but I had to kill her) Prodigy-Smack my bitch up Madonna- Like a virgin Fræbblarnir-Í nótt Dead kennedys-Too drunk too fuck Megas-Litlir sætir strákar Iron maiden-Bring your daugther to the slaugther Red hot chili peppers-Suck my kiss

» 2 hafa sagt sína skoðun

10.02.2005 13:27:06 / dressman

Ferðasagan.... in detail

Nú eru komnar myndir af parísarferðini....

Föstudaginn voru við lent um hádegi og byrjuðum á á að villast á Gharles De Gaulle vellinum undir dyggri franskri fararstjórn :lol: en það reddaðist fljótt og eftir 45 mín í metro vorum við kominn á hótelið, það gekk nú ekki alveg áfallalaust fyrir sig að tjékka sig inn vegna ruglings á netinu en það reddaðist og þá var rokið beint í steik og bjór, Plate du jour et kronenburg, sil vous plait....LOKSINS. En svo var rölt um parís og kíkt í búðir og töffarast almennt. Um kvöldið var Kíkt á Búddha bar (http://www.buddha-bar.com) maturinn var ekkert spes en stemmingin og umgjörðin um staðinn var ógleymanleg (hí á ykkur sem haldið að Vegamót séu hipp og kúl 8) ). Eftir þetta var farið á röltið í paris enda veðrið með betra móti, haldið upp Champ Elyssé og Sigurboginn barinn augum, ég var ekki með myndavélina þá..... fannst ekkert hipp og kúl að vera með myndavél á búddha ;) Eftir þetta var farið upp á hótel og einni champagne slátrað með orginal camenbert og nokkrum kronenburg 1664.

Laugardagurinn byrjaði eins og allir hinir dagarnir á nautasteik, svo var turninn skoðaður, en ekki farið upp tveir tímar eru einfaldlega of dýrmætir í Paris til að eyða í biðröð. það var flækst aðeins í búðum og börum, en svo haldið á hótel til að græja sig fyrir kvöldið. Um kvöldið var farið í siglingu um Signu með fjögurra rétta dinner og hljóðfæraleik. Foie gras, Hörpuskel, úrval osta og desert algerlega ógleymanlegt. Það tók smá hlaup og slagsmál við blómasala sem við rændum(löng saga og ljót) að komast um borð, en það hafðist. Seinna um kvöldið var farið á djammið og að sjálfsögðu á REX (en ekki hvað), flottur klúbbur sem var rétt við hótelið....

Sunnudaginn var farið á Julienne, Eldgamalt brasserie, sem Emmi (franski fararstjórinn) var að vinna á fyrir nokkrum árum, fengið sér foie gras og steik í þynnkunni. Lourvé skoðað seinna um daginn og slysast inn á kaþólska messu í Notre Dame, síðbúinn kvöldverður á pizzastað um kvöldið og svo kokteilar á hommabar fram eftir nóttu. Á mánudeginum var svo haldið heim í grámyglulegan hversdagsleikan.....má segja að ég dauðsjái eftir að hafa komið heim :lol:


» 3 hafa sagt sína skoðun

26.01.2005 00:22:30 / dressman

París

Ég er að fara til parísar þann 4. feb....... BARA SNILLD.


» 2 hafa sagt sína skoðun

30.11.2004 15:53:29 / dressman

Hvaða helvítis!!!

Fróðleiksmoli um blog.central.is

"Vefþjónninn sem þessi vefur er hýstur á er 600Mhz Intel vél með 256MB í innraminni. Ekki furða að hann verði stundum hægur á dögum þegar 600.000 flettingar (e. smellir) eru framkvæmdir af gestum"

og þeir segja frá þessu, ef þið bara vissuð af snilldini sem þið hafið misst af vegna þess að "færsla tókst ekki"  eitthvað sem mætti skrifa á þennan FAKKIN tölvugarm sem er að keyra þetta apparat :^)


» 3 hafa sagt sína skoðun

30.11.2004 15:27:17 / dressman

Geirfinnstekki málið Leyst!!!!

Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á Geirfinnsmálinu svokallaða og öllum þeim samsæriskenningum sem í kringum það. Mín uppáhalds var kannski sú sem tengdist Framsóknarflokknum, að Geirfinnur sem var sprútt sali hafi ætlað að koma upp um Klúbbinn og sölu þeirra á smygluðu áfengi til bargesta. Sem hefði orðið mikil hneisa fyrir Framsóknarflokkinn þar sem Klúbburinn var rekinn í þeirra húsnæði og þeir hafi þar afleiðandi "fyrirskipað" fyrir að þessi maður yrði tekinn úr umferð. Mér hefur alltaf fundist þessi soldið fyndin og skemmtileg.

En nýlega var ég að ræða við einn kunningja minn sem er úr Keflavík og hafði það eftir móður sinni sem var upp á sitt besta  þegar þetta stóð sem hæst að Geirfinnur hafi einfaldlega drukknað þegar hann var að vitja smyglsins við bauju sem skammt var utan við Reykjanes. Þetta hafi verið á margra vitorði hvernig þetta hafi gerst en enginn viljað segja því þá hafi komist upp um smygl leiðina og allir hætt að fá ódýrt brennivín. Svo stundum er kannski bara best að halda kjafti og vera sáttur með það sem maður hefur, svo einn dauður lóner í Keflavík er kannski ágætis bítti fyrir ódýrt bús. Þetta er núna mín eftirlætis Geirfinnstekki kenning


» 0 hafa sagt sína skoðun

29.11.2004 15:48:19 / dressman

Gyðingarnir á Ísafyrði

Mér er það óskiljanlegt að fólk tapi alltaf sjálfsvirðinguni yfir ódýrum rafmagnstækjum, eftirfarandi er úr frétt mbl.is:  "Fjöldi fólks beið tímunum saman fyrir utan nýja verslun BT á Ísafirði áður en hún var opnuð á laugardag. Þeir sem lengst biðu tjölduðu daginn áður á bílastæði fyrir utan verslunina. Talið er að á annað hundrað manns hafi beðið fyrir utan er verslunin opnaði."

 Hver eyðir nóttini í tjaldi, á bílastæði, á Ísafirði um vetur!!! Til þess eins að geta keypt sér 300.þúsund króna plasma sjónvarp á afborgunum, 35.000 vaxtalaust í 12 mán. Ef ykkur fýsir í ódýr rafmagns tæki bendi ég ykkur á Kaffi Austurstræti.


» 2 hafa sagt sína skoðun

21.11.2004 19:13:22 / dressman

Margaríturnar og útmigna klóstið sem hallaði

Nokkru seinna, orðinn rétt rúmlega tvítugur sat ég ásamt vinum mínum við drykkju á mexíkóa barnum Tres Locos, eftir nokkrar ís kraps margarítur líður að salernisferð. Er þá ca. 10 manna, einföld unisex röð á snyrtinguna þar sem inngangurinn á Karla og kvenna aðstöðuna voru andspænis hvor annari í rúmlega meters breiðu skoti. Gengur röðin hægt og einkennilega. Þegar mér dregur nær sé ég að ástæða biðraðar-tregðunnar er maður sem stendur í skotinu og er að hleypa öllum konunum á undan inn á karlaklóstið, gott og blessað “damaner först” og allt það. En þegar röðin kláðaðist og enn hafði ég ekki komist að og maðurinn ætlaði að fara sjálfur næst, þrátt fyrir munnleg fyrirmæli mín, sá ég tækifærið þegar síðasta stúlkan gekk út af yfir mignu karlaklóinu, tek ég harkalegaí jakka mannsins og sveifla honum utan í hurðina á kvennaklóinu svo að í söng, stekk inn og læsi. Þegar ég svo hef lokið mér af á útkrotuðu salerninu með 10° gólfhalla, og opna út þá sé ég að þetta er ríkasti hljómplötusali á landinu, Jón Olafs. Með brotið stolt og þanda blöðru gekk hann beygður inn á baðherbergið og læsti.

» 2 hafa sagt sína skoðun

21.11.2004 14:55:59 / dressman

Bósagan

18ára eldhugi, svindlaði ég mér á sir Oliver, fer á klóstið og þar eru Laddi(átti staðinn) við annan mann að tala mjög ölvaðan þriðja mannin til , ég legg bjórinn á hillu ofan við pissuskálina og tek hraustlega til við að míga. Sé ég þá að skyndilega er hálffullt bjórglasið þrifið af hilluni, og stendur þá sótsvartur Krumma pabbinn með glasið og hyggst hella því niður, syngjandi “eitt lítið serbnest blóm”. Gríp ég þá í niður rigndan rykfrakkan, toga hann hraustlega og segi" Ég drep þig ef þú hellir´essu" sé ég þá bláa flíspeysu koma fljúandi á Bó og toga hann frá mér og kenni ég þar Hermann Gunnars. kominn til bjargar Trúbrotlingnum. Eigandi staðarinn var einnig staddur inni á salerninu og tekur glasið af skepnuni og afhendir mér það með orðunum "afsakaðu vinur, ertu ekki alveg rólegur samt” Eftir þetta var Magga Steri fengin í dyrnar og við komumst aldrey aftur inn.

» 0 hafa sagt sína skoðun

20.11.2004 00:08:32 / dressman

Bíoferð!!!!!

Ég fór í bíó og ó já það telst til frétta, smárabío, the forgotten, laugard.kvöld, ég og unnustan.
 Ég komst að því að þetta geri ég aldrey aptur og mundi afhverju ég geri þetta ekki yfir höfuð, þetta er heimskulegasta leið í heimi til að eyða tveim tímum í hópi gargandi únglinga, glápa á heilalausa mynd(ætla ekki einu sinni að byrja að fara að tala um hana) og troða sig út af sykri. Og afhverju þurfa sætisbökin að gefa svona eftir alltaf svo maður hallist aftur og verði bara þreyttur, þetta var bara vibbi.

» 3 hafa sagt sína skoðun

01.11.2004 14:19:00 / dressman

Gestapó

Endilega ekki vera feimin við að skrifa í gestabókina, þið hafið greinilega ekkert betra að gera.....................


» 2 hafa sagt sína skoðun

29.10.2004 23:39:25 / dressman

látinn

Ætlaði að setja inn sniðugan atburð í niðurtalninguna hér á blog central og ákvað að fara á deathclock.com, reiknaði út dauðdaga minn, og setti inn í niðurtalninguna, næst þegar ég skrái mig inn, stendur í niður talningareitinum " Atburður er þegar liðinn! "

» 0 hafa sagt sína skoðun

29.10.2004 21:54:37 / dressman

ikea fólkið

Ég var í ikea, gangandi í gegum gangaflækjur og skoðandi þykjustu heimilli og að virða fyrir mér starfsfólfið íklætt sænsku fánalitinum hagvænlega dulbúnum sem einkennisfatnaði sem færi sænskri Hitlersæsku vel. Þá rann upp fyrir mér ljós, þetta lið býr þarna, á kafi í skandinavískri naumhyggju byggðri upp úr ópússuðum við og fægðu stáli, er lítið samfélag. Samfelag folks sem býr í í því sem við köllum gervi íbúðir undir hugsjón sænsku félagshyggjunar í sátt og samlyndi. Hugsaðu um það............

» 0 hafa sagt sína skoðun